Hjartalaga rjómabollur með prinsessukökufyllingu

Ljósmynd/Linda Ben

Linda Ben bakar að sjálfsögðu bollur eins og vera ber og eins og hennar er von og vísa tók hún þær í ansi skemmtilega átt.

„Mér finnst rosalega gaman að þróa uppskriftir og alls konar hugmyndir áfram og geri sjaldan sömu uppskriftina tvisvar alveg eins. Svo þegar ég fór að leggja hugann í bleyti yfir því hvernig bollur ég ætti að gera fyrir bolludaginn datt ég niður á þá hugmynd að gera prinsessuterturjómabollur. Útkoman var hreint út sagt stórkostlega góð!“ segir Linda.

Bollurnar eru fylltar með hindberjasultu, marsípani og pastry cream-rjómablöndu, rétt eins og prinsessuterta.

„Ég stoppaði nú samt ekki þar með hugmyndavinnuna heldur ákvað ég að prófa að sprauta deiginu í hjarta. Ég þurfti fyrst að breyta vatnsdeigsbolluuppskriftinni lítillega svo hún héldi betur lögun við sprautun en annars var það leikur einn að sprauta deiginu í alls konar form. Ég prófaði að gera fyrst frekar stór hjörtu en gerði þau svo minni eins og þið sjáið á myndinni, bæði var mjög gott og algjört smekksatriði hvort sé betra og því leyfi ég báðum útfærslunum að njóta sín á myndinni.“

Ljósmynd/Linda Ben

„Bollurnar skreytti ég með lituðu súkkulaði eða Candy Melt sem er oft notað til að hjúpa svokallaðar drip-kökur. Það gerði ég vegna þess að ég vildi ekki að blóma- og berjaskreytingin myndi leka af eins og hún myndi gera ef ég hefði hjúpað bollurnar með glassúr. Ég fann litað súkkulaði í Hagkaup en það er eflaust til á fleiri stöðum, en ef þú lendir í vandræðum með að finna það þá er líka hægt að nota hvítt súkkulaði og hafa hjúpinn hvítan. Það gerir mjög mikið fyrir áferðina á bollunum að hafa stökkt súkkulaði utan á og gerir þær alveg ómótstæðilegar!“

Hjartalaga rjómabollur með prinsessukökufyllingu

Hjartalaga vatnsdeigsbollur

  • 250 ml vatn
  • 125 g smjör
  • 33 g sykur
  • 175 g hveiti
  • ½ tsk. salt
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 250 g egg (4-5 stk.)

Aðferð:

  1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 190°C og undir+yfir.

  2. Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.

  3. Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjörvatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín.

  4. Vigtaðu 250 g af eggjum með því að setja skál á vigt, brjóttu 4 egg út í skálina (ætti að vera í kringum 200-250 g), brjóttu annað egg í aðra skál og hrærðu það saman, settu hrærða eggið út í skálina á vigtinni þar til eggin mælast 250 g og hrærðu þau vel saman við deigið. Áferðin á að vera þannig að deigið á að vera slétt og glansandi, það á að leka hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni sé sleifin tekin upp úr deiginu.

  5. Settu deigið í sprautupoka með stórum opnum stjörnustút, settu sprautupokann með deiginu inn í ísskáp í 30 mín. eða þar til deigið er orðið kalt.

  6. Settu smjörpappír á ofnplötu, gott að setja örlítið deig undir hornin á smjörpappírnum til að festa hann niður. Sprautaðu lítið V með því að byrja efst hvoru megin og draga á ská niður þannig að mest sé af deigi efst í v-inu og minnst af deigi þar sem hornið er. Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum.

  7. Bollurnar eru bakaðar í u.þ.b. 20-25 mín. en ekki opna ofninn fyrr en alla vega 20 mín. eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, þú sérð það þegar þú opnar bolluna en hún má alls ekki vera blaut inni í.

Prinsessutertufylling

  • Hindberjasulta
  • 300 g marsípan
  • 500 ml nýmjólk frá Örnu mjólkurvörum
  • Fræin úr 1 vanillustöng
  • 1 egg
  • 1 eggjarauða
  • 100 g sykur
  • 30 g kornsterkja/maizena-mjöl
  • 25 g smjör
  • ½ tsk. salt
  • 400 ml rjómi frá Örnu mjólkurvörum
  • Litað súkkulaði t.d. Candy Melt eða Clasen
  • 2 msk. bragðlítil olía

 Aðferð:

  1. Byrjað er á því að útbúa pastry cream með því að setja mjólkina í pott ásamt vanillufræjunum og hitið hana að suðu en slökkvið um leið undir þegar byrjar að sjóða.

  2. Setjið egg, eggjarauðu, kornsterkju og sykur í skál og hrærið saman. Hellið 1/3 af heitu mjólkinni út í skálina með hrærivélina í gangi. Þegar allt hefur blandast saman hellið þá eggjablöndunni aftur ofan í pottinn með restinni af mjólkinni. Kveikið aftur á hitanum undir pottinum og hrærið stanslaust í blöndunni þar til hún hefur þykknað mikið og aðeins breytt um lit. Slökkvið þá undir pottinum og hrærið smjörið og saltið saman við.

  3. Hellið blöndunni í eldfast mót sem passar í ísskáp og leggið plastfilmu yfir, kælið vel.

  4. Byrjið á því að skera bollurnar í sundur, smyrjið þær svo að innan með hindberjasultu. Skerið marsípanið í u.þ.b. ½ cm sneiðar og fletjið út hverja sneið og mótið í hjarta (sjá aðferð á Instagram í rjómabollu highligts), leggið marsípanið ofan á sultuna.

  5. Bræðið litaða súkkulaðið, setjið u.þ.b. 2 msk. af bragðlítilli olíu út í súkkulaðið til þess að gera það meira fljótandi ef það er mjög stíft. Hjúpið lokið á bollunum með súkkulaðinu og skreytið eftir smekk með berjum, matarglimmeri og ferskum blómum (ath. ekki eru öll blóm æt og það þarf þá að fjarlægja þau áður en bollurnar eru borðaðar).

  6. Þeytið rjómann og hrærið honum saman við kalda pasty cream-ið. Setjið í sprautupoka og sprautið inn í bollurnar. Lokið bollunum og berið fram.

Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert