Steikin sem smellpassar með páskasósunni

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Páskasósan er ekkert grín og því mikilvægt að vera með hárrétta steik með henni. Hér gefur að líta uppskrift að syndsamlega góðri svínasteik úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is sem henni fannst smellapassa með sósunni góðu.

„Hér er svínalundin búin að liggja í marineringu og er síðan elduð í ofni. Hana væri einnig gott að grilla en þennan daginn var snjóstormur úti svo við lögðum ekki í að taka grillið út, hahaha. Með lundinni er ofurgóð sveppasósa með skalottlauk, kartöflumús með hvítlauk og gott salat,“ segir Berglind um uppskriftina.

Svínalund og meðlæti

Fyrir um 5-6 manns

Svínalund

  • Um 900 g svínalund (keypti 2x grísalundir um 450 g hvor)
  • Bezt á svínið-krydd
  • 8 msk. ólífuolía
  • 5 msk. sojasósa
  • 2 msk. gult sinnep
  • 4 msk. púðursykur

Aðferð:

  1. Snyrtið svínalundina, þerrið og kryddið með Bezt á svínið-kryddi allan hringinn.
  2. Blandið öllum öðrum hráefnum saman í skál og pískið saman.
  3. Hellið um 1/3 af marineringunni í aðra skál og geymið þar til síðar fyrir penslun og veltið svínalundinni vel upp úr restinni og leyfið henni að marinerast í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt er líka í lagi). Gott að gera þetta í stórum ziplockpoka.
  4. Hitið ofninn í 200°C og byrjið að elda lundina með álpappír yfir, hækkið síðan upp í 220°C síðustu 10 mínúturnar, takið álpappírinn af og setjið grillstillinguna á, penslið um leið restinni af marineringunni á lundina. Það tekur ekki nema um 30 mínútur að elda litlar lundir eins og þessa, séu þær sverari tekur það lengri tíma og því er alltaf best að notast við kjöthitamæli.
  5. Eldið í ofni þar til kjarnhiti sýnir um 70°C og leyfið steikinni síðan að standa í að minnsta kosti 10 mínútur áður en hún er skorin.

Sveppasósa

  • 250 g kastaníusveppir
  • 1 skalottlaukur
  • Um 3-4 msk. smjör
  • 500 ml rjómi
  • 200 ml vatn
  • 1 pk TORO „Kantarell & Sjampinjongsaus“
  • 1 pk TORO „Kremet Kyllingsaus med basilikum & sjalottlok“
  • 1 tsk. púðursykur
  • 2 tsk. ferskt timían (smátt saxað)
  • salt, pipar og cayennepipar

Aðferð:

  1. Skerið sveppi í sneiðar og saxið laukinn, steikið upp úr smjöri og saltið.
  2. Hellið rjóma og vatni í pottinn og pískið báðar tegundir af sósudufti saman við.
  3. Bragðbætið með púðursykri, fersku timíani og salti, pipar og cayennepipar eftir smekk.

Hvítlaukskartöflumús

  • 4-5 bökunarkartöflur
  • 2 hvítlauksrif (rifin)
  • 3 msk. smjör við stofuhita
  • 2 msk. rjómi
  • 2 tsk. ferskt timían (smátt saxað)
  • salt, pipar og hvítlauksduft eftir smekk

Aðferð:

  1. Sjóðið kartöflurnar þar til þær eru orðnar mjúkar í gegn.
  2. Afhýðið kartöflur, setjið í hrærivélarskál með K-inu, hrærið á lægsta hraða og bætið öllum öðrum hráefnum saman við.
  3. Smakkið til og berið fram með steikinni og sósunni.

Salat

  • Blandað salat úr poka
  • Vínber skorin í tvennt
  • Brómber
  • Fetaostur
  • Furuhnetur

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert