Rétturinn sem kemur bragðlaukunum á óvart

Dásamlegur spaghettí réttur sem mun trylla bragðlaukana.
Dásamlegur spaghettí réttur sem mun trylla bragðlaukana. mbl.is/Colourbox

Hér bjóðum við upp á ofureinfalda útgáfu af spaghettí sem inniheldur „hráa“ tómatsósublöndu. Eða ekkert óþarfa umstang á pönnunni því sósan er köld. Rétturinn er svo toppaður með ricotta sem setur punktinn yfir i-ið.

Spaghettíréttur sem tryllir bragðlaukana (fyrir 4)

  • 1 kg ferskir tómatar
  • 1 stórt chili
  • 1 rauðlaukur
  • 2 stór hvítlauksrif, pressuð
  • Handfylli fersk basilika
  • Raspaður börkur af 1 sítrónu
  • ½ dl ólífuolía
  • Balsamikedik
  • Flögusalt og pipar
  • 1 askja ricotta
  • 200 g spínat
  • 300 g spaghettí

Aðferð:

  1. Saxið tómatana, chili og rauðlauk. Blandið saman ásamt pressuðum hvítlauk, basilikum og röspuðum sítrónuberki. Smakkið tómatsósuna til með ólífuolíu, balsamikedik, flögusalti og pipar.
  2. Hrærið ricotta í skál með salti.
  3. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum og hellið síðan vatninu af.
  4. Blandið spínatinu saman við spaghettíið. Og blandið síðan tómatsósunni saman við.
  5. Setjið spaghettí á fjóra diska og toppið með ricotta. Kryddið með salti og pipar og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert