Einföld en ómótstæðileg steikarloka

Ljósmynd/Hanna Þóra

Steikarlokur eru algjört lostæti og er upplagt að nota afganga í slíkar dásemdir. Hér er Hanna Þóra með eina ofureinfalda uppskrift en hún segir vinsælt á sínu heimili að nýta steikarafganga (ef einhverjir verða) í samlokur daginn eftir.

„Til að byrja með var steikarsamlokan afgangamatur þar sem við kláruðum kjötið, heimagerðu bernaisesósuna og steiktu sveppina en svo hafa hlutirnir þróast þannig að við útbúum stundum steikarsamloku án þess að vera með afganga. Þá kaupum við lítinn bita af nautakjöti, en í hverja samloku þarf ekki mikið kjöt, steikjum sveppi og lauk – ef tíminn er naumur er notuð pakka bernaisesósa – einfalt og alltaf vinsælt hér á bæ," segir Hanna Þóra.

Matarblogg Hönnu Þóru er hægt að nálgast HÉR.

Einföld en ómótstæðileg steikarloka

  • Hamborgarabrauð – t.d. heimagert hamborgarabrauð
  • Rauðlaukur – skorinn í sneiðar
  • Sveppir – skornir í sneiðar
  • Bernaisesósa – tilvalið að nota afgang af heimagerðri bernaisesósu
  • Nautakjöt
  • Salat
  • Salt/pipar

Aðferð:

  1. Kjötið skorið í þunnar sneiðar.
  2. Pakkasósa útbúin eða heimagerða sósan mýkt varlega upp (hún getur auðveldlega ystað annars). Laukur og sveppir snöggsteiktir og hamborgarabrauðið hitað í samlokugrillinu.
  3. Kjötsneiðarnar snöggsteiktar á heitri pönnunni.
  4. Bernaisesósan sett á annan brauðhelminginn… síðan kjöt, laukur, sveppir og svo kannski smá salat… aftur sósa og samlokunni er lokað með hinum helmingnum.
Ljósmynd/Hanna Þóra
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert