Borðstofusett sem slær öll met

Þetta borðstofusett er án efa það óvenjulegasta og hressasta sem við höfum séð lengi. Hér erum við að tala um borð með rólum sem matargestir eiga að sitja í.

Það er vel hægt að ímynda sér fjörið sem getur skapast af rólunum einum saman en sjálfsagt er ráðlegt að drekka ekki of mikið áfengi meðan á borðhaldi stendur – bara svona til öryggis.

Borðstofusettið fæst á Etsy og þar er einnig hægt að fá aðrar sambærilegar gerðir. Það kostar þó sitt en verðmiðinn hljómar upp á tæpa milljón auk fluttningsgjalda og tolla en góðu fréttirnar eru að það tekur fremur stuttan tíma að setja það saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert