Ræktaði kartöflu sem var tvífari hundsins

mbl.is/

Kona nokkur í Bretlandi var heldur betur brugðið þegar hún tók upp kartöflur á dögunum og rakst á eina sem leit út eins og hundurinn hennar.

Konan sagði í samtali við The Sun að sér hefði krossbrugðið og hún hefði samstundis hugsað með sér að kartaflan væri lifandi eftirmynd hundsins hennar sem heitir Dave. Hún hafi sent mynd af kartöflunni til maka síns sem var hjartanlega sammála henni.

Eins og sjá má eru líkindin mikil – eiginlega óhugnanleg og ljóst að konan á framtíðina fyrir sér í kartöflurækt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert