Vín-berin sem vinkonurnar slást um

Réttið okkur þessi vínber á borðið núna!
Réttið okkur þessi vínber á borðið núna! mbl.is/Youtube/Delish.com

Hvern hefði grunað að vínber myndu slá allt annað út þetta sumarið. En hér er á ferðinni munnbitar sem vinkonurnar slást um í saumaklúbbum landsins og það ekki að ástæðulausu – eða í það minnsta hjá þeim sem elska búbblur og góðan gleðskap.

Vínberin sem vinkonurnar slást um

  • Græn vínber
  • Prosecco
  • Vodka
  • Sykur

Aðferð:

  1. Skolið vínberin og setjið í skál.
  2. Hellið Prosecco og vodka yfir berin og setjið í kæli í það minnsta klukkutíma.
  3. Hellið vökvanum frá berjunum og veltið þeim upp úr sykri.
  4. Setjið í skál eða á fínan bakka og berið fram.
 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert