Grjónagrauturinn sem mun gjörbreyta lífi þínu

Ljósmynd/María Gomez

Flest elskum við grjónagraut og hér er komin útgáfa frá Maríu Gomez á Paz.is sem er umtalsvert hollari kostur en við eigum að venjast og talsvert bragðbetri.

„Ég og börnin mín elskum grjónagraut en hann er kannski ekki alltaf hollasti valkosturinn, uppfullur af hvítum grjónum og hvítum sykri. Hér hins vegar gerði ég grjónagraut sem er hollari kostur, með grófum grjónum, hrásykri og besta kanil sem ég hef smakkað.

Hvít grjón eru í raun jafn kolvetnarík og sykur en um leið og grjónin eru orðin gróf eru þau orðin töluvert næringarríkari af bæði steinefni og trefjum og hækka ekki blóðsykur eins og hvítur sykur og hvít grjón gera. Sama má segja um hrásykur versus hvítan sykur en þótt hann hækki blóðsykur jafnt og hvítur sykur er að finna ögn af steinefnum í hrásykri og hann er ekki bleiktur eins og sá hvíti.

Það sem margir vita ekki er að kanill getur safnast fyrir í lifrinni þá sérstaklega í börnum, þá er ég að tala um hinn venjulega kanil, en hann inniheldur mikið magn af kúmaríni sem getur valdið lifrarskaða. Hins vegar er til kanill sem ég nota hér og ég er alfarið farin að nota í allt í stað hefðbundins kanils, en hann heitir Ceylon-kanill, hann inniheldur mjög lítið af kúmaríni og því alveg óskaðlegur börnum.“

Ljósmynd/María Gomez

„Ég held að það sé alveg óhætt að segja að hér höfum við uppskrift að grjónagraut sem þið getið gefið börnunum ykkar án þess að óttast eiturefni og óhollustu. Það sem meira er, er að hann er líka mjög góður kaldur og þess vegna hægt að setja hann í skálar með kanilsykri yfir og svo inn í ísskáp og taka svo út sem eftirrétt.

Ef þið notið rúsínur myndi ég alltaf velja þær lífrænt ræktaðar því ég hef heyrt að notuð sé brennisteinssýra í rúsínum sem eru ekki lífrænt ræktaðar.“

Ljósmynd/María Gomez

Hollur grjónagrautur með besta kanilnum

Fyrsta stig 

  • 2 dl gróf grjón frá MUNA 
  • 4 dl vatn 
  • 1 tsk. salt 

Annað stig 

  • 5 dl nýmjólk 
  • 1 dl rjómi 
  • 2 tsk. vanilludropar 
  • 1 stk. kanilstöng 
  • 2 msk. MUNA-hrásykur 

Ofan á 

  • Gerið kanilsykur úr MUNA-hrásykri og Ceylon-kanil frá MUNA 
  • Rúsínur frá MUNA ef þið notið rúsínur út á grautinn 

Aðferð

  1. Byrjið á að sjóða grjónin í vatninu með saltinu í 45 mín. 
  2. Þegar grjónin eru soðin og allt vatn gufað upp bætið þá 5 dl af mjólk og 1 dl af rjóma út í og hrærið vel. 
  3. Setjið vanilludropa, hrásykur  og kanilstöngina með út í pottinn og setjið hlemm ofan á.
  4. Látið ná suðu og lækkið þá hitann, sjóðið við vægan hita í 35-45 mínútur í viðbót og hrærið reglulega í svo brenni ekki við botninn.
  5. Þegar suðutíminn er liðinn bætið þá 2-3 dl af nýmjólk út í og hrærið. 
  6. Setjið í skálar og stráið rúsínum og kanilsykri yfir. 
  7. Ég hef alltaf lifrarpylsu með grautnum en krakkarnir mínir elska það.
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert