Á von á þremur börnum og mælir með ófrjósemiskokteil

Ryan Reynolds og Nick Cannon.
Ryan Reynolds og Nick Cannon. Ljósmynd/skjáskot af YouTube

Þetta er mögulega ein fyndnasta frétt sem við höfum skrifað lengi en maðurinn á bak við hana er enginn annar en Ryan Reynolds með Aviation ginið sitt.

Nýjasta auglýsingin er með Nick Cannon í aðalhlutverki og er í tilefni af feðradeginum. Cannon á sem kunnugt er, von á þremur börnum og mun hann þá eiga tíu börn í heildina.

Í auglýsingunni mælir Cannon með kokteilnum Herraklippingu og segist sárlega þurfa á honum að halda. Hér er eiginlega nauðsynlegt að sjá auglýsinguna með eigin augum en við bíðum spennt eftir því að Reynolds fái fljótlega verðlaun fyrir afburðarhæfileika í markaðssetningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert