Kjúklingauppskriftin sem Berglind fékk í Bandaríkjunum

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Þegar við vorum að ferðast um Washington-ríki í sumar fórum við meðal annars á Great Wolf Lodge sem er skemmtilegt úlfa-þemahótel sem stelpurnar elska. Það er víðs vegar um Bandaríkin en við höfum alltaf bara farið í Grand Mound í WA. Í sumar pantaði ég grillaðan kjúkling á einum af veitingastöðunum þar og fékk í fyrsta sinn „Creamy Corn“ eða rjómakennt korn/maís sem var alveg hrikalega gott. Þetta var meðlæti með kjúklingnum ásamt kartöflumús og ég hef ætlað mér að prófa að leika þetta eftir síðan ég kom heim. Það hafðist loks og þetta var algjört dúndur!“ segir Berglind Hreiðars um uppskriftina sem hún deilir hér með okkur og er að gera okkur ær af spenningi.

„Sósusjúka ég hefði þó ekki slegið hendinni á móti smá rauðvíns- eða soðsósu þarna með! Maísinn er djúsí í rjómanum og kemur algjörlega í stað sósunnar en þið sem elskið sósur, jafnvel með skeið til hliðar…..skiljið hvað ég er að meina!“

BNA-kjúklingur

Fyrir 4-6 manns

Grillaður kjúklingur, uppskrift

  • 6 kjúklingalæri með legg (keypti þessi í Bónus)
  • Ólífuolía
  • Organic Liquid kryddlögur með hvítlauk
  • Kjúklingakrydd
  1. Hitið ofninn í 210°C.
  2. Penslið ofnskúffu með ólífuolíu og raðið lærunum þar ofan í.
  3. Berið þunnt lag af ólífuolíu á hvert læri og einnig Organic Liquid hvítlaukslög (um ½ tsk. á hvora hlið).
  4. Kryddið vel með kjúklingakryddi á báðum hliðum.
  5. Eldið í 40-45 mínútur og leyfið að standa í 5-10 mínútur áður en skorið er í kjötið.

Kartöflumús, uppskrift

  • 1,2 kg kartöflur (gular eða bökunar-)
  • 40 g smjör
  • 2 msk. sykur
  • 1 tsk. salt
  • 200 ml nýmjólk
  1. Sjóðið kartöflurnar í söltu vatni (2 tsk salt). Mér finnst best að flysja þær fyrst og skera til helminga (í fernt ef þið eruð með bökunarkartöflur) því þá eru þær tilbúnar í hrærivélina um leið og þær eru orðnar mjúkar.
  2. Setjið kartöflur, smjör, sykur og salt í hrærivél og blandið á lágum hraða með K-inu. Bætið mjólkinni saman við í litlum skömmtum. Bætið við meiri mjólk ef þið viljið þynnri mús.

Rjómakenndur maís, uppskrift

  • 6 heilir ferskir maískólfar (um 650 g maískorn þegar búið er að skera af stönglunum)
  • 100 g smjör
  • 30 g hveiti
  • 250 ml matreiðslurjómi
  • Salt og pipar
  • 1 tsk. Organic Liquid kryddlögur með hvítlauk
  • 1 msk. hunang
  1. Skafið maískornið af stönglunum og steikið við meðalháan hita upp úr smjörinu. Saltið og piprið og leyfið að malla í um 5 mínútur.
  2. Hrærið hveitinu næst saman við og hellið svo rjómanum út á pönnuna, hækkið hitann í smástund og hrærið vel allan tímann. Þegar blandan þykknar má lækka hitann og krydda með Organic Liquid, salti og pipar eftir smekk ásamt því að hræra hunanginu saman við.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert