Nýr sushistaður í miðbænum vinsæll

Lúðvík Þór Leósson er einn af eigendum og yfirkokkur á …
Lúðvík Þór Leósson er einn af eigendum og yfirkokkur á Djúsí Sushi. „Hér er boðið upp á sushi, smárétti og poke-skálar. Maturinn hér er undir áhrif- um frá Japan en einnig Suður-Amerí Ásdís Ásgeirsdóttir

Veitingastaðurinn Djúsí sushi var opnaður í Pósthúsi mathöll á dögunum og hefur hitt í mark hjá gestum ef marka má viðtökurnar.

Lúðvík Þór Leósson er einn af eigendum og yfirkokkur á Djúsí sushi.
„Hér er boðið upp á sushi, smárétti og poke-skálar. Maturinn hér er undir áhrifum frá Japan en einnig Suður-Ameríku. Þetta er samspil milli þessara menningarheima,“ segir Lúðvík og segir gesti staðarins sérstaklega sólgna í djúpsteikta rétti.

„Poke-skálarnar eru líka vinsælar, og mjög hollar, og eins fersku rúllurnar okkar,“ segir Lúðvík, en hann hefur verið sushi-kokkur í yfir áratug og kann sitt fag.

„Ég hef haft brennandi áhuga á þessu og er því enn að. Ég er ekki enn orðinn leiður á sushi,“ segir hann og brosir. Lúðvík segir staðinn hafa fengið góðar viðtökur frá því mathöllin var opnuð.

„Húsið fyllist hér öll kvöld og hér er frábær stemning.“

Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert