Draumurinn um að eiga sinn eigin veitingastað blundar í mörgum. Ef þessi draumur býr innra með þér þá gætir þú látið hann rætast. Húsnæði nokkurt við Amtmannsstíg 1 er til leigu en þar var Humarhúsið tekið um margra ára skeið.
Um er að ræða 398 fm veitinga- og skrifstofuhúsnæði sem skiptist í 256 fm veitingahús sem er á tveimur hæðum. Í húsnæðinu er eldhús með tækjabúnaði og útblæstri. Þar eru líka snyrtingar og 62 fm geymsla.
Á 2. hæð hússins eru tvö rými sem geta nýst sem skrifstofa, fundarherbergi og móttaka. Húsnæðinu fylgja tvö sérmerkt bílastæði.
Nánari upplýsingar er að finna á fasteignavef mbl.is.
Af fasteignavef mbl.is: Amtmannsstígur 1