Fiskur er ávallt góður matur til að byrja nýja viku á og við á matarvefnum mælum með þessum ljúffenga saltfisksrétt í spínatsósu. Uppskriftin kemur úr smiðju matgæðingsins Elínar Helgu Guðmundsdóttur. Spínatsósan passar svo ljúft með saltfiskshnökkunum og lyftir þessum rétti á hærra plan. Fullkomin máltíð í byrjun vikunnar sem kitlar bragðlaukana.
Saltaðir þorskhnakkar í spínatsósu
- 1,200-1,300 kg saltaðir þorskhnakkar með roði
- 4-6 msk. hveiti
- ½ tsk. nýmalaður pipar
- 6 hvítlauksrif söxuð
- 1 box/poki ferskt spínat gróft skorið eða 4-6 stk. lausfryst spínat
- 1 stk. sellerí stilkur, gróft skorinn
- ½ glas hvítvín (má sleppa og nota nota vatn í staðinn)
- 1 ½ bolli rjómi
- ½ teningur af krafti, má vera kjúklinga-, grísa-, grænmetis,- eða fiskkraftur
- ólífuolía og smjörklípa til steikingar
Aðferð:
Fiskurinn
- Setjið hveiti í skál og piprið eftir smekk.
- Veltið fiskinum upp úr pipruðu hveitinu.
- Hitið ólífuolíu og smjör á pönnu.
- Brúnið fiskbitana á pönnu upp úr ólífuolíunni og smjörinu í 2-3 mínútur á hvorri hlið.
Sósan
- Hitið ólífuolíu á pönnu á meðalhita.
- Mýkið upp hvítlaukinn og selleríið í ólífuolíunni, ef notað er ferskt spínat er því bætt við hér.
- Bætið við hvítvíninu á pönnuna ásamt kraftinum.
- Látið malla í 2-3 mínútur. Ef notað er frosið spínat er því bætt við hér.
- Bætið við rjómanum bætt við og látið malla í 5-7 mínútur.
Samsetning
- Hellið sósunni í eldfast mót og raðið fiskbitunum í sósuna með roðhliðina upp.
- Bakið í 180° heitum ofni í 10-12 mínútur.
- Í lokin er gott að setja grillið á til að fá enn stökkara roð.
- Berið fram með nýjum kartöflum eða soðnum hrísgrjónum.
Ljúffengt og gott til að byrja vikuna á.
Ljósmynd/Elín Helga