Hvað er betra en djúsí kanilsnúðar með kaffibollanum eða kaldri mjólk á góðum degi? Það er líka lag að koma færandi hendi í vinnuna og gleðja samstarfsfélaganna með nýbakað kanilsnúða sem bráðna í munni. Hér erum við með uppskrift að djúsi kanilsnúðum sem koma úr smiðju Guðrúnu Ýrar Eðvaldsdóttur sem er með uppskriftasíðuna Döðlur og smjör.
Sjáið þessa dýrð!
Ljósmynd/Guðrún Ýr
Djúsí kanilsnúðar
Deig
- 250 ml mjólk
- 3 tsk. ger
- 600 g hveiti
- 1 tsk. salt
- 50 g púðursykur
- 2 egg
- 140 g smjör, við stofuhita
Aðferð:
- Hitið mjólk í örbylgjuofni eða í potti þangað til hún er volg, bætið þá gerinu saman við og leyfið því að gerjast í 2-3 mínútur.
- Setjið þá þurrefnin saman í hrærivélarskál og blandið eggjum og mjólkinni varlega saman við. Hrærið varlega saman, bætið þá smjörinu smátt og smátt saman við.
- Hrærið vel saman á hægum hraða en gott að leyfa því að hrærast saman í 5-10 mínútur.
- Leyfið deiginu að hefast klukkustund eða þangað að til að það hefur u.þ.b. tvöfaldast í stærð.
- Hitið ofninn á 180°C þegar deigið hefur náð að hefast.
- Fletjið deigið út u.þ.b. 60×40 cm og dreifið fyllingunni jafn yfir (sjá uppskrift fyrir neðan).
- Rúllið deigið upp og skerið í u.þ.b. 2 cm breiða snúða.
- Raðið þeim í eldfast mót og leyfið þeim að hefast aftur í 30 mínútur með viskastykki yfir.
- Setjið inn i ofn og bakið í 25 til 30 mínútur eða þangað til að snúðarnir eru fullbakaðir.
- Leyfið snúðunum að kólna lítillega og dreifið síðan kreminu (sjá uppskrift fyrir neðan) yfir, bestir enn volgir en svo sannarlega góðir líka kaldir.
Fylling
- 200 g púðursykur
- 150 g smjör
- 2 msk. kanill
Aðferð:
- Setjið allt saman í skál og bræðið örstutt í örbylgjuofni og hrærið vel saman, leyfið að hvíla við stofuhita meðan deigið er að hefast.
Krem
- 200 g rjómaostur
- 100 g flórsykur
- 50 g hlynsíróp
Aðferð:
- Blandið öllu saman í hrærivélarskál og þeytið í 3-5 mínútur.