Hér er á ferðinni uppskrift að gómsætri súkkulaði- og kókostart með Pólókexbotni frá systrunum Helgu Maríu og Júlíu Sif. Þær eiga og reka veganistur.is. Þetta er hinn fullkomni eftirréttur sem mun slá í gegn í næsta matarboði, veislu eða bara fyrir framan sjónvarpið á góðu kvöldi. Fyllingin er dúnmjúk á meðan botninn er stökkur og góður. Ofan á er svo gómsætt súkkulaðiganache sem erfitt er að standast.
Guðdómleg miðja.
Ljósmynd/Helga María & Júlía Sif
Súkkulaði- og kókostart með pólókexbotni
Pólókexbotn
- 200 g pólókex
- 75 g vegan smjör eða smjörlíki
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Byrjið á því að mala kexið niður í matvinnsluvél eða blandara.
- Bræðið smjörlíkið og hrærið saman við kexið.
- Þrýstið kexinu í botninum á "tart" kökuformi sem og upp alla kanta svo það þeki formið vel.
- Bakið í 8 mínútur.
- Taka úr ofninum og leyfið botninum að kólna alveg áður en fyllingin fer ofan í.
Súkkulaðikókos fylling
- 1 ferna vanillusósa sem þeytist
- 1 dós condenced coconut milk
- 150 g suðusúkkulaði
- Salt á hnífsoddi
Aðferð:
- Byrjið á því að þeyta vanillusósuna þar til hún verður vel loftkennd
- Bætið saltinu, kókosmjólkinni og bráðnu súkkulaðinu saman við í mjóum bunum á meðan þið þeytið á meðalstyrk. Þeytið aðeins áfram.
- Hellið fyllingunni yfir pólókex botninn þegar hann hefur fengið að kólna alveg.
- Setjið í frysti í 30 mínútur áður en þið hellið súkkulaði ganache ofan á.
- Frystið í kökuna í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en hún er borin fram.
- Best er að taka kökuna úr frysti, taka hana strax úr forminu og leyfa henni að hvíla í 30 mínútur áður en hún er borin fram.
Súkkulaðiganache
- 1 dl vegan rjómi
- 100 g suðusúkkulaði
- Súkkulaðikókos fylling
Aðferð:
- Hitið rjómann í litlum potti þar til hann fer aðeins að búbbla.
- Taka af hitanum og hellið súkkulaði dropum eða söxuðu súkkulaði út í, látið rjómann þekja súkkulaðið alveg og leyfið þessu að hvíla í 5 mínútur.
- Hrærið vel saman þar til allt súkkulaðið er bráðið.
- Hellið yfir kökuna og dreifið úr, setjið kökuna aftur í frysti.
- Berið fram og njótið.