#31. - Ónýtur lúxusleikskóli og orlof borgarstjóra

Einar Þorsteinsson, borgarstjórinn í Reykjavík, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Í þættinum er kastljósinu meðal annars beint að íbúðauppbyggingu í borginni, vandræðagangi með leikskólahúsnæði og biðlista eftir plássum sem honum hlýst. Að auki mæta þau Sigríður Á. Andersen, fyrrum dómsmálaráðherra og Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi, til leiks og ræða helstu fréttir vikunnar.