Útfararþjónusta í hartnær 30 ár
Útfararstofa Íslands hefur þjónað íslensku samfélagi af virðingu og fagmennsku í tæplega 30 ár. Við veitum aðstandendum hlýlega og faglega þjónustu og leggjum okkur fram um að skipuleggja útför í samræmi við þeirra óskir.
Með áratuga reynslu og dýrmætri þekkingu tryggjum við að hvert smáatriði sé úthugsað, þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu, virðingu og fagmennsku. Hvort sem um ræðir hefðbundna eða sérsniðna útför, vinnum við náið með aðstandendum til að skapa fallega og virðulega kveðjustund.
Við erum hér til að styðja aðstandendur með hlýju og fagmennsku þegar mest á reynir.
Útfararþjónusta í hartnær 30 ár
Útfararstofa Íslands hefur þjónað íslensku samfélagi af virðingu og fagmennsku í tæplega 30 ár. Við veitum aðstandendum hlýlega og faglega þjónustu og leggjum okkur fram um að skipuleggja útför í samræmi við ykkar óskir.
Með áratuga reynslu og dýrmætri þekkingu tryggjum við að hvert smáatriði sé úthugsað, þar sem áhersla er lögð á persónulega þjónustu, virðingu og fagmennsku. Hvort sem um ræðir hefðbundna eða sérsniðna útför, vinnum við náið með aðstandendum til að skapa fallega og virðulega kveðjustund.
Við erum hér til að styðja ykkur með hlýju og fagmennsku þegar mest á reynir.

Sverrir Einarsson
Útfararstjóri

Andrés James Andrésson
Útfararstjóri

Jóhanna Eiríksdóttir
Útfararstjóri
Að missa ástvin eða ættingja er eitt það erfiðasta sem við göngum í gegnum.
Tilfinningar eru margvíslegar og sorgin er eðlileg viðbrögð. Óhjákvæmilega þarf þá að huga að þeim þáttum er snúa að útför þess látna. Spurningarnar eru margar og þá er gott að geta leitað til aðila sem hafa þekkingu og reynslu á þeim þáttum. Við hjá Útfararstofu Íslands búum yfir þessari reynslu og höfum starfað við útfararþjónustu um árabil.

Undirbúningur
Upplýsingar fyrir aðstandendur sem eru að undirbúa útför.

Gátlisti
Allt það helsta sem aðstendur þurfa að hafa í huga fyrir útförina.

Bálfarir
Bálfarir hafa stöðugt verið að aukast undanfarin ár og áratugi.

Athafnir
Hér finna aðstendur dæmi um hvernig athafnir fara oftast fram.

Tónlist
Listi yfir algeng forspil, eftirspil og sálma fyrir útförina.
Hvar erum við?
Skrifstofa Útfararstofu Íslands er til húsa í Auðbrekku 1, Kópavogi. Þar er einnig góð aðstaða sem prestar/athafnarstjórar og aðstandendur geta rætt saman í næði. Skrifstofan er opin frá 8.00 til 17.00 virka daga, en þjónusta er allan sólarhringinn og um helgar. Sími: 581-3300 og 896-8242.
Vegna eðlis starfseminnar eru aðstandendur hvattir til að hringja og bóka viðtalstíma.
Samstarfsaðili Útfararstofu Íslands er Útfararstofa Hafnarfjarðar, Flatahrauni 5a, Hafnarfirði, S. 565 5892.
Útfararstofa Íslands
Útfararstofa Íslands var stofnuð árið 1996 af Sverri Einarssyni, sem er eigandi fyrtækisins. Samstarfsfélagi Sverris við stofnun útfararstofunnar var Sverrir Olsen, en saman höfðu þeir unnið við útfararþjónustu hjá kirkjugörðum Reykjavíkur í fjölda ára. Sverrir Olsen lést árið 2005. Árið 1999 hóf Baldur Frederiksen, útfararstjóri, störf hjá útfararstofunni en hann hafði einnig unnið í mörg ár við útfararþjónustu hjá Kirkjugörðunum með þeim félögum Sverri E. og Sverri O. Árið 2000 hóf nýútskrifaður guðfræðingur, Bryndís Valbjarnardóttir, störf hjá útfararstofunni, en þá var hún ein fyrsta konan sem starfaði sem útfararstjóri í fullu starfi. Skrifstofa Útfararstofu Íslands að Auðbrekku 1, Kópavogi.