fös. 26. apr. 2024 23:21
Úr upptöku öryggismyndavélar bensínstöđvarinnar í Kongsberg ađfaranótt 30. október 2022. Lögregluţjónn hefur nú hlotiđ 120 daga óskilorđsbundinn dóm fyrir meiri háttar líkamsárás og brot í opinberu starfi.
Norskur lögreglumađur dćmdur

Lögregluţjónn í Kongsberg í Noregi hlaut á ţriđjudaginn 120 daga óskilorđsbundinn fangelsisdóm fyrir meiri háttar líkamsárás á plani bensínstöđvar ţar í bćnum í októberlok 2022.

Kom ţá til harkalegra orđaskipta milli lögregluţjóna og hóps manna sem lyktađi međ ţví ađ lögreglumenn veittust harkalega ađ Kevin Simensen, 26 ára gömlum manni í hópnum, og börđu hann međ kylfum og hnúum. Lögreglan í Kongsberg greindi svo morgunvakt stađarblađsins ţar í bćnum frá ţví ađ tveir menn hefđu veriđ kćrđir ţá um nóttina fyrir ađ veitast ađ lögregluţjónum en síđar kom upptaka öryggismyndavélar á bensínstöđinni fram og snerust vopnin ţá í höndum lögreglunnar á stađnum.

Frétt af mbl.is

Eftir ađ fyrst Dagbladet og í kjölfariđ ađrir stćrstu fjölmiđlar Noregs birtu upptökuna og fjölluđu um máliđ var lögreglumanninum sem hafđi sig mest í frammi vikiđ tafarlaust frá störfum og gaf rannsóknardeild í innri málefnum lögreglu, Spesialenheten for politisaker, út ákćru á hendur honum fyrir ađ hafa fariđ offari í starfi og fariđ langt út fyrir starfssviđ sitt međ ţví ofbeldi sem hann beitti Simensen.

Lögmannafélagiđ međ böggum hildar

Annar lögregluţjónn á vettvangi tók síma af félaga Simensens og eyddi upptöku af átökunum. Sćtti sá einnig ákćru og hlaut sekt fyrir sína háttsemi en ekki var krafist fangelsisrefsingar yfir honum.

Komst Hérađsdómur Buskerud ađ ţeirri niđurstöđu 7. júlí í fyrra ađ lögregluţjónninn hefđi ekki fariđ út fyrir starfssviđ sitt, öll hans valdbeiting hefđi veriđ í samrćmi viđ lög og reglur auk ţess sem hérađsdómur vísađi bótakröfum fórnarlambsins frá dómi.

 

 

Vakti dómurinn mikinn úlfaţyt hjá Lögmannafélagi Noregs eftir uppkvađningu og lét Marius Dietrichson, tals- og forsvarsmađur verjendahóps félagsins, ţau orđ falla í viđtali viđ málgagniđ Advokatbladet í fyrrasumar ađ sýknudómur í hérađi vekti áleitnar spurningar tengdar meginreglunni um réttarríkiđ.

Samhćfing ćtti ekki ađ eiga sér stađ

Taldi Dietrichson ađ ekki vćri ţađ einvörđungu valdbeiting lögreglumannsins, sem nú hefur hlotiđ dóm, sem vekti spurningar heldur einnig tilraunir annarra lögreglumanna á vettvangi til ađ hylma yfir međ samstarfsmanni sínum og eyđa gögnum um atburđarásina sem síđar kom svo skýrt fram á upptöku öryggismyndavélar bensínstöđvarinnar.

Frétt af mbl.is

Undirstrikađi Dietrichson sérstaklega ađ full nauđsyn vćri á ađ tryggt vćri međ kerfisbundnum hćtti ađ lögreglan greindi frá og gripi inn í ţegar hún sći ađ samstarfsfólk bryti af sér í starfi. „Ţađ sem ţarna gerđist á ekki ađ geta gerst. Samhćfing framburđa og skýrsluskrifa lögreglumanna á ekki ađ eiga sér stađ. Skýrslur skal hver skrifa fyrir sig og ţćr eiga ađ vera réttar,“ sagđi Dietrichson.

 

 

Svo sem glöggt má sjá á upptökunni reyndu fjórir lögregluţjónar ađ handtaka Simensen á plani bensínstöđvarinnar ađfaranótt 31. október 2022. Sýnir upptakan glöggt ţegar Simensen er sleginn ţrettán sinnum međ lögreglukylfu á fjórtán sekúndum auk ţess sem hann er barinn fjölda hnefahögga og varnarúđa dćlt yfir hann.

Ţađ var Lögmannsréttur Borgarţings sem kvađ upp dóminn á ţriđjudag og dćmdi lögreglumanninn til 120 daga óskilorđsbundins fangelsis, tvöfalt ţyngri refsingar en Marit Oliver Storeng saksóknari hafđi fariđ fram á. Klofnađi dómurinn í afstöđu sinni og vildu tveir dómarar af sjö sýkna ákćrđa en fimm dómarar töldu hann sekan um meiri háttar líkamsárás og brot í opinberu starfi.

Var honum einnig gert ađ greiđa Simensen og félaga hans, sem síminn var tekinn af, bćtur fyrir gjörđir sínar, samtals jafnvirđi rúmlega 600.000 íslenskra króna.

 

 

Heidi Reisvang, verjandi ákćrđa, segir norska ríkisútvarpinu NRK ađ skjólstćđingur hennar sé mjög vonsvikinn og óttist ađ dómurinn muni setja fordćmi sem geri lögreglu erfiđara fyrir ađ rćkja störf sín. Hafa ţau skjólstćđingurinn ţegar ákveđiđ ađ áfrýja málinu til Hćstaréttar.

Frétt af mbl.is

Unn Alma Skatvold, formađur Landssambands lögreglumanna í Noregi, Politiets Fellesforbund, segir ađ standist dómurinn fyrir Hćstarétti verđi mikillar umrćđu ţörf um hvernig lögreglan ţori ađ ganga til sinna starfa.

Olav Rřnneberg, álitsgjafi NRK um afbrotamál, telur allar líkur á ađ Hćstiréttur Noregs taki máliđ fyrir ţar sem mál af sama tagi hafi aldrei fariđ alla leiđ upp áfrýjunarkerfi norskra dómstóla.

NRK

Dagbladet 

VG

TV2

til baka