þri. 7. maí 2024 20:00
Vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir, Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Sara Jasmín Sigurðardóttir eru í skvísuferð í Svíþjóð!
Aðalskvísur landsins flúðu rigninguna

Samfélagsmiðlastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir, Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Sara Jasmín Sigurðardóttir flúðu rigninguna á Íslandi í von um betra veður annars staðar – nánar tiltekið í Lundi í Svíþjóð. 

Vinkonurnar eru í sannkallaðri skvísuferð, en þær hafa notið þess að geta skilið jakkann eftir heima þrátt fyrir að hafa þurft að hafa regnhlíf meðferðis – enda töluvert auðveldara að sætta sig við smá rigningu ef það er hlýtt úti. 

Þær hafa verið duglegar að birta myndir og myndskeið frá ferðinni á samfélagsmiðlum sínum, en þær byrjuðu ferðina á því að versla sér allar eins skó frá danska tískumerkinu Ganni áður en þær settust niður og fengu sér drykki. 

 

 

View this post on Instagram

A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss)

 

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

 

til baka