fim. 9. maí 2024 19:00
Hilary Duff er orðin fjögurra barna móðir!
Fjórða barnið kom í heiminn í stofunni

Leikkonan Hilary Duff fæddi sitt fjórða barn þann 3. maí síðastliðinn og deildi í gær fallegum myndum frá heimafæðingunni á Instagram-síðu sinni. Þetta er þriðja barnið sem leikkonan eignast með eiginmanni sínum Matthew Koma, en hún á einnig son úr fyrra hjónabandi. 

Duff tilkynnti gleðifregnirnar á Instagram þar sem hún sagði einnig frá nafni stúlkunnar. „Townes Meadow Bair, nú vitum við hvers vegna hún lét okkur bíða svona lengi ... Hún var að fullkomna þessa kinnar! Mig hefur dreymt um að halda á þér í fanginu á mér í marga mánuði og síðustu fimm daga sem ég hef fengið að kynnast þér, stara á þig og finna lyktina af þér hafa verið töfrum líkastir. Við elskum þig öll eins og þú hafir verið hér alla tíð fegurðardís,“ skrifaði hún í færslunni. 

Það er nóg um að vera hjá Duff sem er nú orðin fjögurra barna móðir. Elsta soninn, Luca sem er 12 ára, deilir Duff með fyrrverandi eiginmanni sínum Mike Comrie. Árið 2018 eignuðust Duff og Koma svo sitt fyrsta barn saman, dótturina Banks sem nú er fimm ára, og þremur árum síðar eignuðust þau dótturina Mae sem er þriggja ára. 

View this post on Instagram

A post shared by Hilary Duff (@hilaryduff)

 

til baka