mið. 8. maí 2024 22:55
Birnir Boði fór í fyrsta þyrluflugið aðeins þriggja mánaða gamall.
Sonur Birgittu Lífar í fyrsta þyrlufluginu

Birnir Boði Enoksson, sonur Birgittu Lífar Björns­dótt­ur, sam­fé­lags­miðla­stjörnu og markaðsstjóra World Class og Enoks Jónssonar, fagnaði þriggja mánaða afmæli sínu með fyrsta þyrlufluginu.

Móðir hans deildi myndum úr fluginu á Instagram-reikningi sínum í dag, en ferðalangurinn ungi virðist hafa sofið vært í fluginu.

Dreng­ur­inn er fyrsta barn Birgittu og kærasta hennar Enoks, sem er sjómaður og athafnamaður.

Eru eflaust fáir sem geta státað sig af því að hafa farið í þyrluflug tæpri viku eftir eigin skírn líkt og Birnir Boði, en hann var skírður í Fríkirkjunni í Hafnarfirði síðastliðna helgi.

https://www.mbl.is/fjolskyldan/frettir/2024/05/06/sonur_birgittu_lifar_skirdur_adaltiskunafninu/

View this post on Instagram

A post shared by Birgitta Líf Björnsdóttir (@birgittalif)

 

 

 

til baka