fim. 9. maí 2024 10:55
Útkallið var í Vesturbænum.
Var sofandi þegar slökkvilið bar að garði

Grunur er um að eldurinn sem kviknaði í rúmfötum í íbúð í fjölbýlishúsi í Vesturbænum í gærkvöldi hafi kviknað út frá sígarettu. 

Þóra Jónasdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að lögreglunni hafi borist tilkynning um mikinn reyk í íbúðinni á tíunda tímanum í gær.

Þegar slökkvilið bar að garði var íbúinn sofandi. Eins og segir var mikill reykur í íbúðinni og var hún því reykræst.

Ekki þurfti að rýma allt húsið. Einn var fluttur til aðhlynningar á bráðamóttöku.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/05/09/kviknadi_i_rumfotum/

til baka