fim. 9. maí 2024 15:10
Katla Tryggvadóttir og Hlín Eiríksdóttir fagna.
Katla međ tvö mörk í fyrri hálfleik (myndskeiđ)

Katla Tryggvadóttir skorađi tvö marka Kristianstad í dag ţegar liđiđ vann góđan útisigur á Örebro, 4:2, í sćnsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en ţrír íslenskir leikmenn eru í hvoru liđanna.

Örebro komst yfir snemma leiks en Katla skorađi tvö mörk og Tilda Persson eitt fyrir Kristianstad á 15 mínútna kafla um miđjan fyrri hálfleik.

Fyrra mark Kötlu kom eftir góđan undirbúning Hlínar Eiríksdóttur og Katla bćtti viđ ţriđja marki Kristianstad á 27. mínútu eftir sendingu Hlínar en ţađ var einnig af fallegri gerđinni. Fyrra markiđ má sjá hér ađ neđan.

 

 Kristianstad komst síđan í 4:1 í síđari hálfleiknum.

Hlín lék allan leikinn međ Kristianstad og Katla spilađi í 70 mínútur. Ţá kom Guđný Árnadóttir inn á eftir 59 mínútur hjá liđinu.

Áslaug Sigurbjörnsdóttir lék í 79 mínútur međ Örebro og Katla María Ţórđardóttir í 66 mínútur en Bergţóra Sól Ásmundsdóttir kom inn á hjá Örebro á 66. mínútu.

Kristianstad er í fjórđa sćti deildarinnar međ 9 stig úr fimm leikjum en Örebro situr eftir á botninum, án stiga eftir fimm leiki.

til baka