sun. 30. júní 2024 19:00
Robert Pattinson er nýbakaður faðir.
Persónuleikinn strax kominn fram

Twilight-stjarnan Robert Pattinson varð faðir nýlega þegar unnusta hans, tónlistarkonan Suki Waterhouse, fæddi barn. Það kemur honum á óvart hversu hratt og vel dóttir hans dafnar. 

„Lætur þér finnast þú mjög gamall og mjög ungur,“ sagði Pattinson um föðurhlutverkið á tískusýningu í París að því fram kemur á vef People. 

„Hún er svo sæt,“ sagði hann jafnframt um ungbarnið. „Veistu, það kom mér á óvart hversu hratt persónuleik þeirra kemur fram. Svo jafnvel þriggja mánaða sé ég hver hún er,“ sagði Pattinson. 

 

 

til baka