Leitinni að hinum 19 ára Jay Slater á Tenerife hefur verið hætt. Hans hefur verið saknað síðan 17. júní.
Sky News greinir frá.
Slater er frá Bretlandi en hann var í fríi á Tenerife ásamt vinum sínum til að sækja NRG tónlistarhátíðina á Amerísku ströndinni. Þegar síðast spurðist til hans var hann staddur í Rural de Teno-þjóðgarðinum á norðvesturhluta eyjarinnar.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/06/25/leitarhundar_til_tenerife_eftir_9_daga_leit/
Nú hefur leitin verið blásin af en lögreglan mun þó halda áfram að rannsaka málið.