mán. 1. júlí 2024 09:35
Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og Egill Halldórsson.
Draumadama Írisar og Egils komin í heiminn

Fyr­ir­sæt­an Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og at­hafnamaður­inn Eg­ill Hall­dórs­son eignuðust sitt fyrsta barn saman í lok júní þegar lítil stúlka kom í heiminn. 

„26.06.24,“ skrifaði parið í sameiginlegri færslu á Instagram. „Litla draumadaman okkar mætti í heiminn.“

Ásamt því að greina frá komu barnsins birtu þau myndir af barninu nýfæddu sem og af Írisi í fæðingunni. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar foreldrunum til hamingju með barnið!

View this post on Instagram

A post shared by 𝓘𝓻𝓲𝓼 𝓕𝓻𝓮𝔂𝓳𝓪 𝓢𝓪𝓵𝓰𝓾𝓮𝓻𝓸 (@irisfreyjas)

 

 

til baka