mán. 1. júlí 2024 20:00
Victoria og David Beckham voru ástfangin árið 1997.
Rifjar upp eldheita daga með David Beckham

David og Victoria Beckham kunna að gera vel við sig og það gerðu þau líka árið 1997 í Portofino á Ítalíu þegar þau voru nýbyrjuð saman. Viktoria rifjaði upp gamla tíma með Beckham á Instagram á dögunum. 

„Portofino árið 1997 var mjög, mjög rómantísk ferð. Ég man hvað ég var spennt að vera þar með David í fyrsta skipti. Það var mikil spenna að vera bara tvö saman í 48 tíma,“ skrifaði frú Beckham á Instagram. 

Fyrrverandi kryddpían og núverandi fatahönnuðurinn er að senda frá sér ilmvatn sem ber nafnið Portofino. Þess vegna rifjaði hún upp helgina með Beckham. Það á reyndar vel við að rifja upp tímann á Portofino núna þar sem margar stjörnur keppast upp að ferðast um Amalfi-ströndina á þessum árstíma en bærinn Portofino er staðsettur á ítölsku riveríunni.  

View this post on Instagram

A post shared by Victoria Beckham (@victoriabeckham)

 

 

til baka