mán. 1. júlí 2024 23:00
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræðir við fréttamenn.
Býst við áframhaldandi stuðningi í Evrópu

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að hann búist við því að evrópskir bandamenn myndu halda áfram miklum stuðningi við NATO þrátt fyrir sigur öfgahægrimanna í fyrstu umferð frönsku kosninganna.

Blinken forðaðist að tjá sig beint þegar hann var spurður um sigur Þjóðfylkingarflokks Marine Le Pen en benti almennt á styrkingu NATO eftir innrás Rússa í Úkraínu.

„Bandalagið er að vinna að því að tryggja að við höfum réttar varnir þvert yfir bandalagið, þar sem þeirra er þörf, þar sem þær skipta máli,“ sagði Blinken við Brookings-stofnunina í Washington.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/07/01/taktisk_kosning_komi_i_veg_fyrir_sigur_le_pen/

til baka