„Ormsson getur ekki tekið áhættuna á því að vera með kveikt á skiltinu, því ef svo ólíklega færi að ekki yrði fallist á kröfur Ormsson þá yrði tjónið of mikið, enda 150.000 króna dagsektir á hvern dag sem kveikt er á skiltinu,“ segir Vilhjálmur Þ.Á. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður.
Forsvarsmenn verslunarinnar Ormsson hafa stefnt Reykjavíkurborg vegna vinnubragða byggingafulltrúans í Reykjavík í tengslum við umdeilt auglýsingaskilti á húsi fyrirtækisins við Lágmúla. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum.
Deilt hefur verið um kröfu borgarinnar um byggingarleyfi fyrir umrætt skilti og hvort leyfið hafi verið veitt.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag.