fim. 1. ágú. 2024 08:00
Zooey Deschanel er dugleg að pakka í töskur.
Með þráhyggju fyrir því að pakka í töskur

Hollywood-stjarnan Zooey Deschanel og sjónvarpsstjarnan Jonathan Scott leggja jafnmikið af mörkum þegar þau fara í ferðalög. Styrkleikar þeirra liggja þó á mismunandi sviðum. 

„Ég fæ þráhyggju yfir því að pakka í allar töskur – ég vil vera undirbúin undir allt,“ sagði Deschanel í viðtali við People

„Jonathan hins vegar er frábær í þessu praktíska, að skipuleggja og sjá um dagskrána,“ sagði leikkonan um unnusta sinn. 

Börn Deschanel fá hins vegar að njóta og þurfa ekki að sjá um neitt. Leikkonan á hina átta ára gömlu Elsie og sex ára gamla Charlie með fyrrverandi eiginmanni sínum. „Þau njóta bara ferðarinnar og borða naslið sitt.“

 

til baka