lau. 27. júlí 2024 19:00
Meghan Trainor fer á klósettið með eiginmanni sínum.
Geta horft á hvort annað á klósettinu

Söng­kon­an Meg­h­an Train­or og leik­ar­inn Daryl Sa­bara eru að flytja og ætla að breyta baðherberginu á nokkuð óvenjulega hátt. Þau vilja hafa tvö klósett á móti hvort öðru inni á baðherbergi. 

Trainor og Sabara eru þekkt fyrir óvenjulegt skipulag inni á baðherbergjum en á gamla heimilinu þeirra voru tvö klósett hlið við hlið. „Við erum að flytja í nýtt hús og það er með klósetti og skolskál á móti því,“ sagði Trainor í hlaðvarpsþætti á dögunum að því fram kemur á vef E. Trainor ákvað að breyta skolskálinni í annað klósett. „Þetta varður aðeins öðruvísi en það er minna baðherbergispláss, svo við verðum nálægt hvort öðru. Hné á móti hnjám. Og það er betra. Ég vil sjá hann.“

Hjónin pissa mjög oft á sama tíma en hafa afar sjaldan haft hægðir á sama tíma. Fyrir utan þægindin að þurfa ekki að bíða eftir klósettinu segir Trainor að tvö klósett í sama rými komi sér vel með litla krakka sem eru að æfa sig að nota klósett. 

Trainor gefur lítið fyrir gagnrýnina. „Fyrirgefið en þið vitið ekki hvað ást er,“ sagði Trainor. „Reynið að komast yfir þetta.“

 

til baka