mið. 24. júlí 2024 20:30
Simon Cowell getur ekki fengið sér te án þess að vera gangrýndur.
Tegerð Simons Cowells veldur usla

Það er ekki jafneinfalt að hita sér tebolla og mætti halda. Hæfileikadómarinn Simon Cowell hitaði sér tebolla á Instagram nýlega og vakti aðferð hans mikla athygli, þá sérstaklega neikvæða athygli. 

Það má segja að te með mjólk sé þjóðardrykkur Breta og þar sem að Cowell er Breti ætti hann að þekkja allar reglur inn og út. Hans aðferð var þó gagnrýnd. 

Cowell tók tvo tepoka og setti út í heitt vatn í könnu. Hann sagðist þurfa tvo tepoka þar sem gæðin á teinu væru ekki nógu góð. Það var þó ekki tveggjapoka aðferðin sem vakti mesta reiði á meðal aðdáanda hans. 

Í fyrsta lagi þótti það skjóta skökku við að Cowell, sem notar möndlumjólk í teið sitt, hellir fyrst mjólkinni og svo teinu. „Mjög mikilvægt, þú verður að setja mjólkina fyrst, ég nota möndlumjólk,“ sagði Cowell. 

Einnig þótti Cowell hræra heldur of mikið í teinu í stað þess að bíða og leyfa teinu að blandast við heita vatnið á rólegan hátt. Þolinmæði er kannski ekki sterkasta hlið Cowells. 

 

View this post on Instagram

A post shared by SmileTrainUK (@smiletrainuk)

 

 

til baka