fös. 19. júlí 2024 10:00
Pétur Jóhann Sigfússon hefur sett glænýtt hjólhýsi sitt á sölu.
Pétur Jóhann selur 7,6 milljóna hjólhýsi

Leikarinn og skemmtikrafturinn Pétur Jóhann Sigfússon setti á dögunum inn færslu á Facebook-hópinn Brask og brall þar sem hann auglýsti glænýtt hjólhýsi til sölu. 

Hjólhýsið er af gerðinni Hobby 620 Cl Alde og er að sögn Péturs Jóhanns tilbúið í útileguna. Hjólhýsið státar meðal annars af gólfhita, sólarsellu og aukarafgeymi svo eitthvað sé nefnt. Verðið sem gefið er upp í færslunni er 7.650.000 krónur. 

 

Pétur Jóhann er enginn nýliði þegar kemur að hjólhýsum og útilegum, en hann hefur sjálfur verið duglegur að ferðast og var til að mynda staddur í hjólhýsi í Húsafelli ásamt syni sínum þegar útvarpsmenn K100 slógu á þráðinn hjá honum sumarið 2021.

Þá hefur hann einnig leikið í eftirtektarverðum hjólhýsaauglýsingum. 

https://k100.mbl.is/frettir/2021/06/30/thad_er_eg_sem_er_stjarnan_herna/

til baka