fös. 19. júlí 2024 18:30
Diarmuid O'Carroll í leik með Val 2010, fyrir aftan hann er Kristján Valdimarsson.
Gamall Valsari mætir þeim í Evrópuleik

Valur mætir skoska félaginu St. Mirren í ann­arri um­ferð Sam­bands­deild­ar karla í fót­bolta, 25. júlí og 1. ágúst og í hópnum þekkir einn Val mjög vel.

Diarmuid O'Carroll er 37 ára gamall aðstoðarþjálfari St. Mirren en hann spilaði með Val í íslensku úrvalsdeildinni árið 2010.

 

Hann kom á miðju tímabili og spilaði sex leiki með liðinu, vann tvo, gerði eitt jafntefli og tapaði þremur leikjum. Valur endaði í 7. sæti með 28 stig og eftir tímabilið fór O'Carroll til Glenavon á Norður-Írlandi.

 

til baka