Bćđi slćmar og góđar fréttir má lesa út úr upplýsingum um laxveiđiárnar sem ekki eru í efstu sćtunum á listanum yfir aflabrögđ, sem angling.is birti í gćr. Ţannig blasa viđ miklar sveiflur í mörgum ám. Hér tökum viđ fyrir neđri hluta listans.
Byrjum á góđu fréttunum. Andakílsá er međ miklu betri veiđi en í fyrra. 128 laxar á móti 45 á sama tíma í fyrra. Ţar kemur fram smálaxasveiflan sem Borgarfjörđurinn og Vesturlandiđ er ađ njóta í sumar. Svipađa stöđu má sjá í Haukadalsá, Straumunum, Brennunni, Skugga og raunar líka í Hrútafjarđará. Allt ár og svćđi sem eru langt yfir veiđinni á sama tíma í fyrra. Allt ţetta má lesa út úr listanum hér ađ neđan.
Ţađ eru líka slćmar fréttir sem leynast innan um. Blanda átti lélegt ár í fyrra. Hún hefur skilađ 72 löxum í sumar, en á sama tíma í fyrra var hún í 225 löxum. Ekki má afskrifa Blöndu ţví stóri straumurinn á miđvikudag getur breytt stöđunni. En byrjunin er áhyggjuefni.
Hafralónsá er spurningamerki. 35 laxar í sumar á móti 105 í fyrra. Nágrannar hennar, ţćr Sandá og Svalbarđsá eru á betra róli. Sandá reyndar enn undir í samanburđi viđ 2023 en Svalbarđsá ađeins yfir.
Laxá í Ađaldal er á svipuđu róli og í fyrra ţegar hún bćtti sig verulega og virđist sem sú bćting stađfestist í ár. Ţađ er samt enn frekar stutt liđiđ á sumariđ ţar á bć og nćsti straumur verđur spennandi.
Hofsá er töluvert undir miđađ viđ 2023. Hins vegar berast góđar fréttir úr Vopnafirđinum og ţćr fréttir raungerast vonandi í veiđitölum innan skamms.
Hér er stađan í ánum sem ekki komust á topp tuttugu listann hjá okkur í gćr.
Veiđitölurnar miđast viđ veiđi ađ loknum veiđidegi 17. júlí. Dálkur tvö er veiđi í ţessum ám á sama tíma í fyrra. Raunar munar tveimur dögum ţví angling.is birtir alltaf tölur á fimmtudögum og ţađ bar upp á 19. júlí í fyrra. Allar ţessar ár eiga ţví tvo daga inni. Ţriđji dálkurinn er svo fjöldi veiddra laxa vikuna 10. – 17. júlí.
Vatnasvćđi Veiddir laxar 2023 Vikuveiđin
Hofsá í Vopnafirđi 141 232 51
Laxá í Ađaldal 128 125 54
Andakílsá 128 47 53
Haukadalsá 125 91 49
Brennan 123 82 12
Skjálfandafljót 108 -- 14
Straumar 101 39 24
Hítará 96 134 23
Straumfjarđará 96 89 48
Miđfjarđará í Bakkaf. 82 77 50
Úlfarsá (Korpa) 76 69 26
Blanda 72 225 23
Leirvogsá 69 113 44
Svalbarđsá 69 74 53
Sandá í Ţistilfirđi 69 58 42
Skuggi 53 45 8
Hrútafjarđará 52 23 27
Miđá í Dölum 51 44 25
Hólsá Austurbakki* 40 25 --
Mýrarkvísl 38 -- 34
Hafralónsá 35 105 12
Gljúfurá í Borgarf. 33 35 8
Flekkudalsá 32 -- 23
Laugardalsá 23 -- 7
Fnjóská 12 -- 2
Fljótaá 7 -- 3
Svartá í Húnavatnss. 7 8 5
Ţar međ er tćmdur listinn sem angling.is birti í gćr. Misjafnt er hvađ er til af gögnum yfir ţćr ár sem neđarlega eru á listanum.
*Tölur frá 10. júlí og samanburđaráriđ er úr sömu viku.