fös. 19. júlí 2024 13:02
KALEO er á hljómleikaferđalagi um Norđur-Ameríku og Evrópur um ţessar mundir.
Kaleo gefur út lag um skotárásir í Bandaríkjunum

Íslenska rokkhljómsveitin Kaleo gaf í nótt út lagiđ USA Today, lag sem tekur á byssuárásum í Ameríku og ofbeldi tengdum skotvopnum. Lagiđ er gefiđ út í kjölfar skotárásarinnar á Donald Trump ţar sem saklaus áhorfandi lét lífiđ. 

Fyrir Kaleo ţá er lagiđ ádeila á síendurteknar skotárásir sem eiga sér stađ nánast daglega í Bandaríkjunum. Hljómsveitin mun gefa hluta af tekjum lagsins til samtakanna Everytown sem eru samtök sem berjast gegn skotrárásum og ofbeldi tengdum skotvopnum. 

„Ţetta lag fangar ţann hrćđilega veruleika skotárása og ofbeldis sem viđ höfum upplifađ undanfarinn áratug í Bandaríkjunum, landi ţar sem viđ höfum búiđ og túrađ. Ţessar skotárásir hafa haft mikil áhrif á okkur alla. Nú síđast tilgangslaus skotárás í Pennsylvaníu-fylki ţar sem saklaus mađur lét lífiđ.

Viđ vonum ađ nú sé komiđ ađ breytingum og mikilvćgar og nauđsynlegar breytingar verđi gerđar á lögum um skotvopn í Bandaríkjunum. Hugur okkar er hjá fjölskyldu mannsins sem skotinn var til bana um helgina og allra annarra sem eiga um sárt ađ binda vegna tilgangslauss ofbeldis um heim allan,“ segir Jökull Júlíusson, söngvari, gítarleikari og lagahöfundur Kaleo. 

 



til baka