fös. 19. júlí 2024 15:00
Eva birti myndir af sér í kjólnum á samfélagsmiðlum og vakti mikla athygli.
Klæddist kjól úr snakkpokum

Eva Ruza, þáttastjórnandi á K100 og skemmtikraftur, kann svo sannarlega að klæða sig vel en um daginn klæddi hún sig í handgerðan kjól úr snakkpokum.

 

Systur taka áskorun

Kjóllinn hefur vakið mikla athygli en Eva birti myndir af sér í honum á samfélagsmiðlum á þriðjudaginn. Lýsir hún því að kjóllinn sé heimagerður og að systir hennar, Tinna, hafi hjálpað mikið við að gera skemmtilega hugmynd að veruleika.

„Fyrir nokkrum mánuðum síðan fékk ég senda til mín mynd frá fylgjanda hér á gramminu, þar sem viðkomandi skoraði á okkur systur að gera sambærilegan kjól úr snakkpokum,“ segir Eva í Facebook-færslu sinni og bætir við:

„Ég henti hugmyndinni yfir á Tinnu, því án hennar verður ekki nema 50% að veruleika, og svo hlupum við af stað.“

View this post on Instagram

A post shared by 🌟 Eva Ruza🌟 (@evaruza)

 

Eva nefnir að Maruud snakkpokar séu notaðir í kjólinn og að verkefnið sé unnið í samstarfi við Innnes.

Fagnar fleiri hugmyndum

Eva segir í lok færslu sinnar:

„Ekki hika við að senda okkur hugmyndir. Þær geta orðið að veruleika.“

til baka