fös. 19. júlí 2024 17:30
Stefán Ingi er orđinn leikmađur Sandefjord í Noregi.
Blikinn frá Belgíu til Noregs

Framherjinn Stefán Ingi Sigurđarson er kominn til norska félagsins Sandefjord og skrifađ undir samning til ársins 2027. Hann kemur til Sandefjord frá Patro Eisden í Belgíu.

Í frétt á heimasíđu Sandefjord kemur fram ađ Halmstad og Strřmsgodset hafi einnig haft áhuga á Stefáni en hann valiđ Sandefjord.

Hinn 23 ára gamli Stefán er uppalinn hjá Breiđabliki en hann hefur einnig leikiđ međ Grindavík, ÍBV og HK hér á landi. Hann gekk í rađir Patro Eisden á síđustu leiktíđ.

Hann hefur skorađ tíu mörk í 16 leikjum í efstu deild hér á landi og 16 mörk í 29 leikjum í 1. deildinni.

Sandefjord er í botnsćti norsku úrvalsdeildarinnar međ 13 stig eftir 15 leiki. 

til baka