fös. 19. júlí 2024 18:50
Jaden Philogene er kominn til Aston Villa á ný.
Snýr aftur í uppeldisfélagiđ

Enska úrvalsdeildarfélagiđ Aston Villa hefur gengiđ frá kaupum á Jaden Philogene frá Hull City í B-deildinni. Philogene skrifađi undir fimm ára samning viđ Villa í dag.

Kantmađurinn fór til Hull frá uppeldisfélaginu Aston Villa fyrir ári síđan og er nú aftur kominn heim. Ipswich og Everton höfđu einnig áhuga á leikmanninum, sem kaus Villa.

Villa greiđir um 20 milljónir punda fyrir Philogene, sem er 22 ára. Hann lék ţrjá leiki međ Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni áđur en hann skipti yfir til Hull.

Hann skorađi 12 mörk og lagđi upp sex til viđbótar í 32 leikjum međ Hull á síđustu leiktíđ. Hann hefur einnig leikiđ á láni hjá Stoke og Cardiff.

til baka