lau. 20. júlí 2024 18:01
Katie Cousins og Anita Lind Daníelsdóttir á Hlíðarenda í dag.
Sjálfsmark Keflavíkur á ögurstundu

Valur vann dramatískan sigur á Keflavík, 2:1, í 13. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á Hlíðarenda í dag.

Valur jafnar Breiðablik að stigum, blæði með 36, en liðið er í öðru sæti vegna markatölu. Keflavík er í níunda sæti með níu stig. 

Valskonur voru sterkar í fyrri hálfleik og sköpuðu sér fullt af færum. Ísabella Sara Tryggvadóttir var sérlega lífleg en klúðraði góðu færi snemma leiks.

Anita Lind Daníelsdóttir kom Keflavík óvænt yfir á 20. mínútu leiksins. Þá fékk hún boltann frá Melanie Forbes og skaut að markinu. Boltinn tók mikla stefnubreytingu við viðkomu Hailey Whitaker, varnarmanni Vals, og þaðan fór hann yfir Fanneyju Ingu Birkisdóttur og í netið. 

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir jafnaði metin fyrir Val á 28. mínútu leiksins þegar hún potaði boltanum inn eftir darrðardans í teignum eftir hornspyrnu, 1:1.

Valskonur fengu endalaust af dauðafærum í seinni hálfleik og voru nöfnurnar Berglind Rós Ágústsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir mest í þeim. 

Sigurmark Valsliðsins kom þó undir blálok leiks og það var sjálfsmark. 

Valur mætir Tindastóli á Sauðárkróki í næstu umferð. Þá fær Keflavík Þór/KA í heimsókn. 

til baka