Öster vann botnlið Sundsvall, 2:0, í næstefstu deild Svíþjóðar í knattspyrnu karla í Växjö í dag.
Þorri Mar Þórisson kom inn á 69. mínútu fyrir Öster. Liðið er í öðru sæti B-deildarinnar með 29 stig.
Landsliðsmaðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson spilaði þá allan leikinn í jafntefli Häcken gegn Värnamo, 2:2, á útivelli í dag.
Häcken er í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 24 stig, fjórtán stigum minna en Malmö á toppnum.