lau. 20. júlí 2024 20:42
Toto Wolff ósáttur í dag.
Reiður út í allt liðið

Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes-liðsins í Formúlu 1, var ósáttur við liðið eftir frammistöðu dagsins.

Lewis Hamilton gekk ágætlega í dag og lenti í fimmta sæti en liðsfélagi hans, Georg Russel, náði sér ekki á strik.

Hann mun byrja í 17. sæti í Ungverjalandi á morgun því hann var ekki með nógu mikið bensín til að klára mikilvægan hring í dag.

„Þetta var léleg frammistaða hjá bókstaflega öllum sem komu nálægt þessu. Að missa bíl á þessu stigi keppninnar á ekki að gerast. Við vorum líka ekki með nægilegan hraða, mjög, mjög svekkjandi dagur,“ sagði Toto Wolff.

til baka