lau. 20. júlí 2024 22:00
André Onana, markvörður Manchester United.
Talar vel um nýja liðsfélaga sinn í United

Andre Onana, markmaður Manchester United í úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Englandi, talaði vel um Leny Yoro, 18 ára miðvörð United.

Yoro spilaði í fyrsta sinn með liðinu í dag í æfingaleik gegn Rangers sem endaði 2:0. Hann var í byrjunarliði og spilaði fyrri hálfleik í leiknum.

„Hann er hér því hann er með mikla hæfileika. Ef þú spilar fyrir Manchester United þá ertu hæfileikaríkur og hann sýndi það í fyrri hálfleik,“ sagði Onana um hann í viðtali við Sky Sports.

Það er mikil pressa á honum, út af verðmiðanum sérstaklega, er hann nógu sterkur karakter til að spila undir þeirri pressu sem fylgir því að spila með United?

„Við erum hér til þess að hjálpa honum. Það skiptir ekki máli hvað gerist, við tökum ábyrgð á honum. Við ætlum að gefa honum tíma en við vitum að hann spjarar sig því ef þú kemur í þetta lið þá ertu góður.“

 

 

 

til baka