lau. 20. júlí 2024 23:53
Valsmenn gerðu það gott gegn Vllaznia og unnu útileikinn 4:0.
Valsmenn fastir í Albaníu og leik frestað

Valsmenn lentu í erfiðleikum með að komast frá Albaníu eftir leik þeirra gegn Vllaznia í Sambandsdeildinni í fótbolta á fimmtudagskvöldið og af þeim sökum hefur leik þeirra gegn Fram í Bestu deild karla verið frestað.

Stóra tæknibilunin í kerfum Microsoft á föstudagsmorguninn hafði víðtæk áhrif á flugsamgöngur um allan heim og meðal strandaglópa af þeim sökum var Valsliðið í Albaníu.

Leikur Fram og Vals í 15. umferð Bestu deildar karla átti að fara fram á mánudagskvöld, á heimavelli Fram í Úlfarsárdal, en honum hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma.

Valsmenn eiga að spila á heimavelli gegn St. Mirren frá Skotlandi í 2. umferð sambandsdeildarinnar á fimmtudagskvöldið kemur.

til baka