fim. 25. júlí 2024 19:00
Ernie Hudson fór með hlutverk Winston Zeddemore í hinum sívinsælu Ghostbusters-myndum.
78 ára og í hörkuformi

Draugabaninn Ernie Hudson er mikill heilsuræktarmaður og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir vöðvastæltan líkama sinn. Hudson, sem er 78 ára gamall, lítur ekki út fyrir að vera degi eldri en 40 ára enda duglegur að halda sér við í ræktinni. 

Hudson, best þekktur fyrir hlutverk sín í Ghostbusters og Miss Congeniality, var gestur í Youtube-þáttaseríunni Power Up í umsjón einkaþjálfarans Tony Horton nú á dögunum og tók nokkrar kjarnaæfingar sem reyna á kvið, síðu og mjaðmir. 

Hudson og Horton tóku einnig létt spjall þar sem leikarinn viðurkenndi að gott líkamsform hafi hjálpað sér að ná langt í Hollywood og eiga langan og farsælan feril. Hudson sagðist einnig hvergi nærri hættur enda með mörg ný og spennandi verkefni í bígerð. 

 

 

til baka