Knattspyrnumaðurinn Lionel Messi er staddur í verðskulduðu fríi ásamt eiginkonu sinni Antonelu Roccuzzo um þessar mundir. Messi varð nýlega Ameríkubikarmeistari með argentíska karlalandsliðinu í knattspyrnu, en eins og margir vita var hann borinn út af velli í úrslitaleiknum vegna meiðsla.
https://www.mbl.is/sport/fotbolti/2024/07/15/thridji_stori_titill_argentinu_i_rod/
https://www.mbl.is/sport/fotbolti/2024/07/15/messi_hagret_a_bekknum/
Eins og sést á myndum sem hjónin birtu á samfélagsmiðlum er kappinn í góðum málum í örmum eiginkonu sinnar, en þau eru stödd á lúxussnekkju ásamt vinum sínum.
Er mikill fjölskyldumaður
Messi og Roccuzzo hafa verið gift síðan 2017 og þau eiga saman drengina Ciro 6 ára, Mateo 8 ára og Thiago 11 ára.
Fótboltasjarnan hefur alltaf verið mikill fjölskyldumaður en eftir úrslitaleikinn deildi hann hjartnæmum pistli á Instagram síðu sína. „Fjölskylda, takk fyrir að vera alltaf til staðar,“ skrifaði hann við mynd af allri fjölskyldunni eftir úrslitaleikinn.