fim. 25. júlí 2024 09:26
Boðið er upp á fría siglingu um Siglufjörð á hátíðinni og getur fólk þá séð fjörðinn frá hafi.
Einstök hátíð á Siglufirði

Á Trilludögum fær fólk einstakt tækifæri til að njóta Siglufjarðar og prófa og sigla við fjörðinn. Hátíðin fer fram nú á laugardaginn en hún hefst klukkan tíu að morgni og verður mikið um að vera í bænum í það minnsta til klukkan fjögur.

Einstakt tækifæri á Siglufirði

„Hugmyndin var sú að vera með þessa hátíð helgina fyrir verslunarmannahelgi,“ segir Linda Lea Bogadóttir, verkefnastjóri Trilludaga, í samtali við K100. Lýsir hún því að hátíðin hafi fyrst verið haldin 2016 og þá heitið Bátadagar en Trilludagurinn svokallaði verið á laugardeginum.

„Trilludagurinn var haldinn á laugardeginum fyrir verslunarmannahelgi og svo voru Bátadagar alla vikuna fram að Síldarævintýrinu,“ útskýrir Linda Lea Bogadóttir, verkefnastjóri Trilludaga og bætir við að viðburðir voru þá haldnir alla vikuna.

 

Þó Bátadagar heyri nú sögunni til er Trilludagurinn enn haldinn á laugardeginum fyrir verslunarmannahelgi og Linda tekur fram að sjarminn við daginn sé óbreyttur. Lýsir hún að gestum sé boðið að fara í fríar siglingar um Siglufjörð og að prófa stangveiði um borð í trillum.

„Fólk getur rennt sjálft fyrir fisk eða bara notið þess að fara í siglinguna,“ segir hún og bætir við að í siglingunni sé útsýnið sé ekki af verri endanum, enda sé ákveðin upplifun að sjá Siglufjörð frá hafi.

„Svo þegar í land er komið þá er aflinn verkaður og flakaður af Kiwanis-mönnum, sem svo grilla hann og bjóða fólki,“ segir hún og tekur sérstaklega fram að allir fái tækifæri til að smakka fiskinn, jafnvel þó þeir hafi ekki farið í siglingu.

Viðtalið við Lindu má lesa í heild sinni í Morg­un­blaðinu í dag.

til baka