Bandaríska lágjaldaflugfélagið Southwest tilkynnti á dögunum að sala á sætum muni hefjast á næsta ári, en hingað til hefur flugfélagið verið með óráðstöfuð sæti. Þá mun félagið einnig bjóða upp á dýrari sæti með auka fótaplássi og hyggst hefja næturflug.
Fram kemur á vef CNBC að þetta séu stærstu breytingar sem gerðar hafa verið í sögu flugfélagsins sem hefur verið starfrækt í yfir fimm áratugi. Ástæða breytinganna er sögð vera mikill þrýstingur um auknar tekjur frá flugfélaginu sem hefur verið með sama viðskiptamódel í 53 ár.
80% vilji frekar úthlutuð sæti
Niðurstöður í könnunum á vegum flugfélagsins voru kynntar í tilkynningu frá félaginu, en þær leiddu í ljós að aðalástæða þess að ferðamenn velji önnur félög fram yfir Southwest séu óráðstöfuð sæti. Þá kom einnig fram að 80% af viðskiptavinum Southwest myndu frekar kjósa að fá úthlutuð sæti.
„Þrátt fyrir að einstaka óráðstafaða sætalíkanið okkar hafi verið hluti af Southwest Airlines frá upphafi hafa ígrundaðar og víðtækar rannsóknir okkar leitt í ljós að þetta er rétti kosturinn – á réttum tíma – fyrir viðskiptavini okkar, fólk okkar og hluthafa,“ sagði Bob Jordan, forstjóri Southwest, í tilkynningunni.