fös. 26. júlí 2024 09:30
Kristín Sif, Bolli Már og Ţór Bćring eru međ morgunţáttinn Ísland vaknar á K100.
Bolli og Kristín vissu ekki svariđ

Ţór Bćring fer oft í spurningaleik međ Kristínu og Bolla í morgunţćttinum Ísland vaknar ţar sem hann spyr út í stađ á Íslandi. Í ţetta skipti gefur hann skemmtilegar vísbendingar um ákveđinn stađ en Bolli og Kristín hafa ekki hugmynd um hvađa stađ hann hefur í huga.

Fyrsta vísbendingin sem Ţór gefur er ađ ţađ sé íţróttafélag á stađnum. Kveđst hann vera mikill áhugamađur um íţróttafélög í minni byggđum.

„Og ţarna kom ég međ smá vísbendingu – ţetta er ekki stór stađur,“ bćtir hann viđ.

Ţór tekur fram ađ ţetta tiltekna íţróttafélag sé ekki neitt sérstaklega virkt en ađ liđ frá félaginu keppi alltaf á öldungamótinu í blaki.

„Ţetta er hrikalega skemmtilegur hópur, mikiđ líf, mikiđ fjör,“ segir hann.

Á stađnum býr stórbóndadóttir

Nćstu vísbendingarnar sem Ţór gefur samstarfsfélögum sínum og hlustendum K100 eru ađ á stađnum sé flugvöllur, tvćr flugbrautir og svo ađ ţar sé einnig viti.

„Heyrđu, ég held ađ ég viti hvađa stađur ţetta er,“ segir Bolli ţá kíminn.

Ţór gefur Bolla ekki svigrúm til ađ svara, heldur kemur međ fleiri vísbendingar.

„Ţađ er ein stórbóndadóttir sem býr á ţessum stađ,“ segir hann og útskýrir ađ ein kona eđa stelpa sem býr á stađnum sé međ ţann titil skráđan sem atvinnuheiti í símaskránni. Segist hann hafa kynnt sér máliđ betur og fengiđ stađfest ađ fađir hennar vćri stórbóndi.

Lýsir hann ţví ţá ađ ţađ sé sérstakur Facebook-hópur tileinkađur stađnum.

„Ţetta er síđa sem er hugsuđ fyrir ţá sem eru ađ leita ađ fari á ţessu svćđi," segir hann og bćtir viđ ađ nýjasta fćrslan á hópspjallinu sé svolítiđ skemmtileg.

Kristín og Bolli segjast ţá alveg týnd og ađ ţau hafi ekki hugmynd hvert rétta svariđ sé. Hringir ţá síminn og fyrsti hlustandi ţáttarins giskar á stađ.

Heyra má leikinn og rétta svariđ í spilaranum hér fyrir neđan.

 



 

til baka