Nú styttist óðum í skemmtilegustu ferðahelgina en K100 ætlar að tryggja að hlustendur fari eldhressir og glaðir inn í verslunarmannahelgina í ár.
Útvarpsstöðin K100 er með sex troðfullar „ferða-töskur“ handa heppnum hlustendum og þarf ekki nema að hlusta á stöðina til að eiga tækifæri á að vinna tösku fulla af góðgæti og skemmtilegheitum fyrir ferðalagið.
Í ferðatösku K100 finna allir eitthvað fyrir sinn snúð en hún inniheldur:
- Prince Polo kassa og sérmerkt Prince Polo Kubb-spil
- Sjúkratösku í bílinn frá Eldvarnarmiðstöðinni
- Próteindrykki frá Örnu
- Ljúffengu kaffitegundirnar Morgundögg og Kvöldroða frá Kaffitári
- Tvær eins lítra flöskur af nýja safanum Flóridana Vellíðan
- Tvær kippur af 7Up Zero Sugar
- Gómsætt snakk frá Kims
Öllum þessum glæsilegu vinningum er svo pakkað í hina einu sönnu Wings ferðatösku frá SmartBoutique.
Fylgstu vel með á K100 þegar dagskrárgerðarfólk hækkar í gleðinni og gefur alls sex ferðatöskur, bæði í beinni útsendingu og á samfélagsmiðlum K100. Hver veit nema örlögin verði með þér í liði og þú vinnir hina fullkomnu tösku í ferðalagið.